Moggablogg.

Ágætu gestir.

Það hefur valdið mér pirringi að blogga eingöngu á fréttatengt efni hér á Moggabloggi. Það hefur þvældst fyrir mér að finna frétt við það sem ég er að hugsa. Engu að síður mun ég láta í mér heyra ef efni standa til varðandi umræðu hér á mb.is. Hvað um það þá hef ég einnig opnað síðu á Runars blog sem verður ef til vill persónulegri, hver veit. Alla vega ekki óbeint ritstýrð í gegnum mbl.is.

 


Fólk rekið út af heimilum sínum.

Þegar fólk er rekið út af heimilum sínum heitir það í Mogganum og viðar "landnemabyggðir stækkaðar". Framferði Ísraelsmanna gegn Palestínumönnum er glæpur gegn mannkyni. Andstaða Bandaríkjamanna er bara í orði.


mbl.is Landnemabyggðir stækkaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tími stórra ákvarðana er runninn upp.

Á meðan ekkert hefur komist að annað en Icsave, hefur mjög stór hópur fólks beðið með ákvarðanir. Því miður eru kostir ekki margir, að gefast upp hætta að borga eða sækja um lengri skuldaól. Vinnufélagi minn sýndi mér í dag stöðu sína sem er dæmigerð fyrir ungt fólk sem keypt hefur íbúð á undangegnum árum. Félagi minn sparaði og kom sér upp höfuðstól og tók svo lán fyrir afgagnaum. Sparnaðurinn er farinn og eignin stendur ekki undir lánum, hann keypti ódýra íbúð engin óráðsía. "Helst vill ég skila lyklinum og leigja" sagði hann "og byrja upp á nýtt." Engin úrræði leyfa það.

Þessi vandræði birtast líka fólki sem keypti húsnæði fyrir löngu og eiga en eftirstöðvar. Það gerir vísitölubindingin sem fylgir láninu en ekki laununum. Hjá mörgum liggur lausnin í að fá nýtt lán og kaupa eignina aftur.

Hverjir eru þeir svo sem við skuldarar skuldum? Í allflestum tilfellum okkur sjálfum. Í mínu tilfelli Lífeyrissjóðnum mínum, -sem ætlar að skapa mér áhyggjulaust ævikvöld-, en honum seldi ég húsbréf á afföllum á sínum tíma og svo íbúðarlánasjóði. Íbúðarlánasjóður er mín eign og annarra Íslendinga.

Frá stríðslokum og meira og minna til 1980 voru vextir neikvæðir, það borgaði sig að skulda. Það var svo um 1966 sem samið var um lífeyrissjóði. Fljótlega varð mönnum ljóst að það var til lítils að safna peningum sem brunnu svo upp í verðbólgunni. Krafan kom ekki síst frá verkalýðshreyfingunni um verðtryggingu lána og ekki síður launa.

Þetta rifja ég upp nú til þess að sýna að verðbætur er pólitísk ákvörðun. Það að breyta grunni lánskjaravísitölunnar í t.d. launavísitölu þ.e. meðaltal launahækkana í landinu, er spurning um pólitískar ákvarðanir. Reikna verður lánskjaravísitöluna upp á nýtt frá því í október í fyrra, á nýjum forsemdum.

Íslensk verkalýðshreyfing er óstarfhæf. Hún lenti í áfalli og þarf á áfallahjálp að halda. En eftir því megum við ekki vera að bíða. Núverandi forystu verður að skipta út fyrir baráttufólk.

Ég kall á aðgerðir til stuðnings alþýðuheimila. Ég kalla á eignatilfærslu frá óhófinu, í meðalhóf hins almenna manns. Það þarf ef til vill ekki svo mikið, málið er að skipta jafnt. 


mbl.is 34 kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð frétt!!

Kröfuhafi Landsbankans stendur upp í fússi og hótar málsóknum og flýgur af land brott, eftir að skilanefndarmönnum hefur verið sagt upp. Kröfuhafinn hefur greinilega misst mikilvæga bandamenn í skilanefndinni. Því er það hið besta mál að reka hina grunsamlegu vini kröfuhafana.
mbl.is Mannanna ekki lengur þörf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamfarir af mannavöldum, frjálshyggjan er sökudólgurinn.

Eva Joly er pólitíkus og ráðgjafi saksóknara vegna efnahagsafbrotanna, sem settu Ísland á hausinn. Ég geri ráð fyrir að áhyggjur Hrannars lúti að diplómatískum vandamálum sem hann telur sig geta orðið fyrir. Þetta er sum sé vandamál þrælsins í samskiptum sínum við böðulinn. Við Íslendingar getum hins vegar borið höfuðið hátt. Ísland er ríkt land, þið munið-- menntun, auðlindir og mikilvæg staðsetning á jörðinni. Það er því ömurlegt hlutskipti að vera vel klæddur en betlari samt.

Gleymum því ekki að þetta voru bara peningar sem við glötuðum og það illa fengnir. Við þurfum að handtaka og dæma afbrotamennina, sína heiminum fram á að við séum ekki að bugast heldur að eflast.

Að vísu hefur fólk látist en byggingar og samgöngumannvirki standa. Eldgos og aðrar náttúruhamfarir eru mun hættulegri. Sem sé hamfarir af mannavöldum, frjálshyggjan er sökudólgurinn.


mbl.is Hrannar sendir Joly tóninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandræðagangur heimsauðvaldsins..

Það er nú þegar ljóst að þjónar heimskapítalismans hafa ekkert lært, sem kemur í raun ekki á óvart. Ástæðan er í raun einföld og barnaleg, pólitíkusum er það ekki meðfætt að viðurkenna mistök. Það sem hjálpar þeim í afneituninni er ótrúleg tryggð kjósenda við gamla flokkinn sinn. Talandi dæmi er aukið fylgi við Sjálfstæðisflokkinn í skoðanakönnun, þrátt fyrir að það hafi verið samkvæmt stefnu flokksins og framkvæmd hans sem leiddu til hrunsins.

Viðbrögð heimsauðvaldsins bera öll einkenni ráðleysis og óskhyggju. Bandaríkin prenta peninga sem aldrei fyrr og Evrópusambandið, sem eru í raun ungt, þó það sé fætt andvana fatlað, finnur ekkert gagnlega en að finna blóraböggul sem er Ísland. Hins vegar er ekkert um ráð eða lausnir heldur á óráðsían að hald áfram. Ekki hefur örlað á aðgerðum við að uppræta vandann eða hjálp við að hafa hendur í hári útrásar glæpamannanna.

Því miður er ekkert sem bendir til þess að kreppa auðvaldsins sé að ganga til baka heldur er fleiri merki um það gagnstæða. Hvort Íslendingar samþykkja eða hafa Icesave skiptir því engu máli, því er trúlega best að samþykkja þá og kaupa frið. Eina lausn auðvaldsins á kreppu eru heimstyrjaldir, um það snýst málið. Ég kýs frið.



mbl.is Ísland – það sem læra má af efnahagshruninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur gáfu ríkisbankana.

_6171d03a-9882-4aa2-808e-c174bf147181_finnur---ol-sh.gifBúnaðarbankinn (þá ríkisbanki) lánaði Björgúlfunum fyrir Landsbankanum, var kannski aldrei nein bjórverksmiðja í Rússlandi. Hvað um það, Björgúlfarnir lánuðu svo S-hópnum fyrir Búnaðarbankanum. Allt fyrir ekkert í boði Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.

Takk fyrir Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson, má þjóðin ekki líka senda reikningana sína til ykkar.

 

 

 

Vegna athugasemdar, hér að neðan frá Önnu Kristjáns, birti ég mynd frá ráninu á Búnaðarbankanum, meðan málið er rannsakað.


mbl.is Varar við borgarastyrjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bandaríkjamenn hafa tapað stríðinu í Írak!

Bandaríkjamenn hafa tapað stríðinu í Írak. Þetta ömurlega stríð sem stutt var af ríkistjórn Íslands, af þeim félögum Davíð Oddsyni og Halldóri Ásgrímssyni. Í upphafi var það hafið vegna meintra gereyðingavopna, sem reyndist vera blekking en síðan var annað fundið til, svo sem harðstjórinn Saddan Hussein. Þessi vitfirring er búin að kosta 100 þúsund mannslíf auk tugi þúsunda heimilislausra flóttamanna. Stríð þetta hefur verið vatn á myllu herskárra bardagamanna. Allt bendir til sömu niðurstöðu í Afganistan þar sem stríðið hefur færst yfir til Pakistan, sem er kjarnorkuveldi. Því miður er ekki von til þess að Bandaríkjamenn geti lært af sögunni, VíetNam, Kórea, voru víti til að varast og nú Írak. Engu að síður er haldið áfram að berjast í Afganistan sem færist yfir til Pakistan, með samþykki okkar Íslendinga í gegnum Nató.
mbl.is Mannskæð sprengjuárás í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Linux, úræði í kreppunni.

Það er óþarfi að örvænta þó gamla tölvan sé orðin hæg, settu þá upp Ubuntu. Ubuntu er linux stýrikerfi sem kostar ekki krónu sjá hér. Þá eru einnig fleiri linuxkerfi fáanleg en Ubuntu, en ég hef ekki kynnt mér þau. Sjálfur hef ég  notað þetta stýrikerfi frá 2006 með góðum árangri. Í raun er greiðsla þín einungis falin í því að nota kerfið og tilkynna galla ef þú vilt, og ef forritið þitt er ekki á íslensku getur þú hjálpað við að íslenska það. Í Ubuntu eru það notendurnir sem þróa kerfið, ekki gróðafíknin. Linux er því úræði í kreppunni.
mbl.is Segja Microsoft ekki ganga nógu langt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers eru landsfundir og kosningar??

Ef sá samningur, sem Steingrímur er nú að undirrita, hefði verið borinn upp á Landsfundi VG, hefði hann umsvifalaust verið feldur. Ég get vitnað í ótal samþykktir því til staðfestingar en nenni því ekki.

Nú er það svo, að það er meira segja  lögfræðilegt álitamál hvort Íslendingum beri nokkur skylda að greiða fyrir klúður EBS varðandi ábirgðir. Trúlega værum við en að hökta í 12 mílunum hefði þessi áhöfn verið við stýrið hér um árið. Allavega veit ég hvað bíður lífeyðisparnaðar míns, hann fer til millistéttarinnar í gömlu Nýlenduveldum Evrópusambandsins.

Helvítis fokking fokk.


mbl.is Icesave-samningur gerður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband