FME aðhefst ekkert, fyrirsögn framtíðar!!

Þetta á eftir að verða algeng fyrirsögn. FME aðhefst ekkert, Seðlabankinn aðhefst ekkert, Ríkistjórnin aðhefst ekkert, Alþingi aðhefst ekkert. Á meðan Ráðamenn kýta um EES, Evru, sem kost í náinni framtíð, stela útrásarvíkingarnir draslinu af okkur aftur og endurskoðunarfyrirtækin endurskoða sjálfa sig. 
mbl.is FME aðhefst ekki vegna viðskipta Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

Þetta er óhugnanlegt en einmitt svona vill Geir H. Haarde hafa þetta. Allir fá syndaaflausn og það á ekkert að komu út úr rannsóknunum. Það á að hvítþvo allt gengið.

En það verður að stoppa sjálftökuliðið og þessi ríkisstjórn verður að fara frá.

Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 8.12.2008 kl. 22:09

2 identicon

Ótrúlegur fjöldi bankafólks sem eiga þátt í HRUNINU eru enn við mikilvæg ábyrgðarstörf í bönkunum í dag,hvað er þetta fólk að gera allavega sumir hverjir?Líklegast að fela slóðir glæponanna.Hvað er þessi bankastýra að vilja uppá dekk,hver réð hana þarna til starfans.Spilling og aftur spilling.

Númi (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 22:41

3 Smámynd: Rúnar Sveinbjörnsson

Mótmælaaðgerðum verður að halda áfram. Ríkisstjórnin og þeirra leppar mega ekki fá hvíld frið. Kreppan á bara eftir að harðna, ég tala ekki um þegar uppsagnirnar fara að taka gildi.

Rúnar Sveinbjörnsson, 8.12.2008 kl. 23:20

4 Smámynd: Óskar Arnórsson

..og þjóðin aðhefst ekkert heldur. Lætur bara míga yfir sig á hverjum degi...

Óskar Arnórsson, 12.12.2008 kl. 04:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband