Íbúðalánasjóður einkavæddur?

Ég man ekki betur en að í nýútkomni skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segði að hér væri allt í besta lagi, nema eftir væri að einkavæða Íbúðarlánasjóð.

Hvað ef við hefðum rokið til og farið að ráðleggingum "bjargvættanna" í IMF? Þorir einhver að hugsa þá hugsun til enda?


mbl.is Bíða niðurstaðna sérfræðinga IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Ha, þurftu bankarnir að fara í brjálæðilega samkeppni við íbúðalánasjóð? Og hvers vegna ertu svona viss um að SEÐLABANKALÁN til Glitnis hefði ekki líka valdið skriðunni - eins spennt og staðan var orðin. Þetta er jú leiðin sem allir virðast vera að fara núna - og verið er að hrósa helvítis Bretunum fyrir að hafa fundið upp!

Haraldur Rafn Ingvason, 13.10.2008 kl. 23:34

2 Smámynd: Rúnar Sveinbjörnsson

Bankarnir ætluðu að hnésetja Íbúðalánasjóð og fjármögnuðu ósköpin með skammtímalánum. Þegar endurfjármagna átti óráðssíuna hrundi spilaborgin. Ég gef skít í allar greiningardeildir þær féllu á prófinu og ráð þeirra voru verri engin. Þegar í nauðir rekur eru það við alþýðan sem greiðir sakaðan, lausnir framtíðar eru því félagslegar lausnir. IMF mun færa okkur niður í hóp fátækra landa og misskiptingar.

Rúnar Sveinbjörnsson, 14.10.2008 kl. 18:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband