AÐ TAKA ÁBYRGÐ Á EIGIN GJÖRÐUM

Eftirfarandi grein birtist 11. jan 2008 á vef Ögmundar Jónassonar.

 

Almenna reglan er að menn taki ábyrgð á eigin ákvörðunum. Á þessu er þó ein stór undantekning. Það er þegar auðvaldið á í hlut. Ekkert síður á Íslandi en annars staðar er það lunkið við að skjóta sér undan ábyrgð.
Á undanförnum árum hefur orðið góðærisprenging, að því okkur sagt er, með æðislegum hagvexti og stórfelldri eignaaukningu; eignir hafi aukist umfram eyðslu. Hversu nákvæma skoðun skyldi þetta þola? Hvernig hafa til að mynda eignirnar orðið til, með aukinni framleiðslu til frambúðar,  meiri útflutningi og meiri tekjum til þjóðarbúsins? Því miður held ég að svo sé ekki.
Skoðum hina opinberu skýringu á hagvexti undangenginna ára, þ.e. að stóriðjuframkvæmdir og svo útrás banka og stórfyrirtækja hafi leitt til hagsældar.
Hefur stóriðjan á Íslandi skilað auknum tekjum? Hvað sem síðar gerist þá er eitt víst, að stóriðjuævintýrið er til þessa ekki eitt af þessum ævintýrum sem fara vel því stóriðjan hefur leitt til stóraukinnar skuldsetningar þjóðarinnar og geigvænlegs viðskiptahalla ár eftir ár! Þegar fram líða stundir og Kárahnjúkapakkinn verður gerður upp í heild sinni eru talsverðar líkur á hann skili þjóðarbúinu tapi en ekki gróða. Við Kárahnjúka er enn verið að bora og fram hefur komið að virkjunin er dýrari en gert var ráð fyrir, þannig að peningarnir sem koma inn fyrir virkjunarframkvæmdina fara í að greiða niður skuldir en afganginn borgum við orkunotendur.
Tökum byggingariðnaðinn, þar hefur verið umtalsverð þensla. Þá þenslu má "þakka" bönkunum og ríkistjórninni. Hækkun lánshlutfals fór öll í hækkun íbúðaverðs, sem færðu  byggingaverktökum og bönkum milljónir á milljónir ofan á silfurfati. Það voru sem sé búin til veð, þannig að bankar gætu lánað meira. Eftir stendur að sjaldan hefur verið erfiðara fyrir ungt fólk að eignast íbúð. Krafa um verkamannabústaði gerast háværari.
Ekki treysti ég mér til að greina útrásina, en þegar lítill steinn er tekinn úr fjallshlíð, getur skriða fallið úr hlíðinni.  Bankar og braskarar hafa leikið þann leik að lána í hlutabréfakaup með veði í væntalegu hlutabréfi, samanber lán varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins. Síðan falla bréfin og lántakendur eru í djúpum skít, reyndar bankinn líka.
Nú bíða menn þess að auðvaldið kalli á hjálp, vilji meiri ívilnanir og skattalækkanir sér til handa. Eitt kunna hinir ríku nefnilega ekki og það er að taka ábyrgð á sjálfum sér. Þeir eru hins vegar óþreytandi að halda fram mikilvægi þess að launafólk sýni ábyrgð. Slíkt tal magnast jafnan í aðdragana kjarasamninga.
Og einmitt nú eru samningar að hefjast. Veslings hagfræðingarnir sem nú hafa með höndum það hlutverk að vernda herra sína jafnframt því að telja kjarkinn úr verkafólki. Í öðru orðinu reyna þeir að kjafta upp hlutabréfin og í næstu setningu segja þeir að allt sé að fara fjandans til.
En hvað um það, verkafólkið getur ekki endalaust sýnt "ábyrgð", svo auðvaldið geti haldið áfram að vera óábyrgt. Slegið ný heimsmet í kaupum á ofurjeppum og komið fleiri ofurríkum Íslendingum á topp 100 listann yfir ríkustu menn.
Er ekki komið að því að verkafólkið fái kjarabætur? Hvernig væri t.d. að verkafólk fengi að lifa sómasamlegu lífi af 40 stunda vinnuviku? 
Rúnar Sveinbjörnsson 

 


Pabbastrákur skipar pabbastrák dómara!

Pabbastrákur skipar pabbastrák dómara! Þeir standa saman strákarnir, enda léku þeir sér saman í kolkrabbaleik í æsku.
mbl.is Segir rangfærslur í yfirlýsingu Árna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þóknanleg niðurstaða - löglegar kosningar!

Þóknanleg niðurstaða - löglegar kosningar!

Þetta er reglan sem farið er eftir, dæmi Palestína þar sigruðu Hamars en úrslit hunsuð.

Afganistan og Írak, lepparnir "sigruðu" lögleg kosning. 


mbl.is Kreml gerir lítið úr mati ÖSE
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki bjart yfir Bethlehem og þar blikar ekki jólastjarna.

Það er ekki bjart yfir Bethlehem og þar blikar ekki jólastjarna.

 http://youtube.com/watch?v=d1FaWE1SIZk

 

jol   Gleðileg jól og friðsælt komandi ár.

   Rúnar
 


mbl.is Vopnahlé ekki á dagskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Próflokagleði Ungra VG

Einhver mesta niðurlæging sem hægt er að ganga í gegnum er að gerast ölmusumaður eða betlari.  Í gegnum tíðina hefur það verið afstaða vinstrimanna að rétturinn til lífsins eigi að vera stjórnarskrárvarinn. Fólk á ekki að þurfa að standa í biðröð til að þiggja matargjafir. Ef nýja stefna nýliða VG er að taka þátt í að draga úr þjáningum þeirra framfærnu, en láta þá sem eru niðurbrotnir og allt að því sveltir eiga sig. Síðan þegar  er haldið partý með ofurgóðri samvisku, velti ég fyrir mér hvað er ég að gera í þessum þessum flokk.

 http://brynjabh.blog.is/blog/brynjabh/entry/396212/#comments

 


Var haldið þing nú í haust?

Lítið varð ég var við þingið nú í haust. Eitt mál reyndar, þingsköp sem stór hluti stjórnarandstöðunnar studdi.  Það sem sagan mun skrá, er aumingjagangur Frjálslyndra og Framsóknar, sem hefur ekki áttað sig á því að hún sé komin í stjórnarandstöðu.
mbl.is Alþingi farið í jólaleyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Námsárangur endurspeglar atvinnuástand!

Getur verið að námsárangur ungmenna endurspegli atvinnuástandið í landinu. Á Reykjavíkursvæðinu er lítið mál fyrir 14 ára börn að fá vinnu í stórmörkuðum. Þar sem atvinnuástand er verra en það var, er  námsárangur betri. Engin frí vegna loðnu eða síldar.

Barn sem hefur staðið við kassa í allt að 8 tíma fer varla að grúska í náttúrufræði, þegar það kemur heim.


mbl.is Ísland undir meðaltali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland- Rússland jafnsterkar ríkistjórnir.

Það er athyglisvert að rússneska ríkistjórnin er jafn sterk þeirri íslensku. Nú er spurningin ætlar sú íslenska að fara betur með völdin. Svo virðist ekki vera,  því eitt fyrsta verk hennar er að skerða málfrelsi stjórnarandstæðinga eins og reyndar í Rússlandi og koma upp greiningardeild (KGB).
mbl.is Vísa allri gagnrýni á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningaloforð, ræs??

Kosningarloforðin hvar eru þau. Ræstu þau.
mbl.is Ræs! sagði Össur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blandaðu meira, blandaðu meira!

Fyrir all mörgum árum var vinsælt lagið "Blandaðu meira". Nokkrum árum síðar  var ég í heimsókn á Kúpu og varð ég þá þess áskinna að söngurinn Guantanamera var Kúbverjum mjög hugleikinn, ekki bara það heldur snart það hjarta fólksins.

Þegar ég svo mörgum árum seinna var staddur á Spáni, er mér minnistætt þegar þarlendur listamaður flutti þetta lag, krækti landinn saman höndum og kyrjaði "Blandaðu meira, Blandaðu meira".

Trúlega er þetta einhver mesta nauðgun á  ljóðskáldi sem um getur. José Marti er að sögn Pete Seeger sem flytur Guntanamera á tónlistarspilara mínum, mesta skáld spánskrar tungu.


 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband