Færsluflokkur: Bloggar

Tímasetning skelfileg fyrir flokkinn, hvað með fólkið?

Þeir hafa ekki miklar áhyggjur af mútuþægni Flokksins þingmenn hans, samkvæmt þessari frétt. Heldur er það tímasetning fréttarinnar. Þeir vita sem er að eftir nokkra mánuði eru kjósendur búnir að gleyma. Gleymskan staðfestist í skoðanakönnun sem birt er í dag, en þar eru flokkarnir sem stóðu vaktina í ríkistjórnunum, og mótuðu þá efnahagsstefnu sem leiddi til hrunsins með mær 70% fylgi. Það eru Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Samfylking.
mbl.is „Það logar allt stafnanna á milli“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vita ekki hvað þeir eiga að kjósa.

Augljóst er að þingmenn Sjálfstæðisflokksins vita ekki hvað þeir eiga að kjósa, því er ekki  nema sjálfsagt að þeir fái að fylgjast með stjórnmálaumræðu,  alla vega fer hún ekki fram í Alþingi.

Seinna þegar þjóðin hefur náð sér eftir áratuga stjórn Sjálfstæðisflokksins er sjálfsagt að veita flokknum aðhlynningu eins og hann veitti strákunum í Breiðuvík.


mbl.is Hlé á þingfundi vegna framboðsfundar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

30. mars árið 1949

Þann 30. mars árið 1949, fyrir sextíu árum síðan, samþykkti Alþingi inngöngu Íslands í Nató. Að þessu tilefni efna Samtök hernaðarandstæðinga til útifundar á Austurvelli, kl. 17:00, mánudaginn 30.mars. Þar verður haldið á lofti kröfunni um að Ísland standi utan hernaðarbandalaga.

Ármann Jakobsson íslenskufræðingur og María S. Gunnarsdóttir formaður MFÍK flytja stutt ávörp. Fundarstjóri verður Stefán Pálsson formaður SHA.

Síðast en ekki síst verður botninn sleginn úr Nató á táknrænan hátt.

Friðarsinnar eru hvattir til að fjölmenna. Ísland úr Nató!

Fréttatilkynning frá Samtökum hernaðarandstæðinga


Loksins þörf á óeirðalögreglu!

Er ekki rétt að rýma Laugadalshöllina strax, áður en óeirðir brjótast út. Hvernig er það, er greiningardeild Ríkislögreglustjóra ekki örugglega að störfum?   Bandit


mbl.is Vilhjálmur: Ómakleg ummæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkur niðurlægir kjósendur.

Sjálfstæðisflokkur niðurlægir launafólk og talar til okkar eins og óvita. Ef allir hefðu hagað sér eins og Þorgerður Katrín varaformaður Flokksins og hennar eiginmaður í fjármálum, væri ástandið þannig í okkar landi að komandi kynslóðar væru hér í ævarandi skuldafangelsi og Ísland í hópi fátækustu ríka heimsins. Í þeim löndum er ekki sjálfgefið að sjúk börn fái viðunandi læknisþjónustu.
mbl.is Skattmann er mættur aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skírar línur - Burt með Sjálfstæðisflokkinn

Stefna okkar í VG er skír. Sjálfstæðisflokkurinn og hans stefna er gjaldþrota. Ekki nóg með það,  heldur hefur Sjálfstæðisflokkurinn dregið þjóðarbúið og heimilin niður í svaðið með sér. Hlegið verður af heimsku okkar Íslendinga, sem aldrei fyrr, um allan heim ef við kysum brennuvargana aftur yfir okkur .

Höfum við efni á Sjálfstæðisflokknum? Ekki ég.


mbl.is VG bundin - á móti Sjálfstæðisflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins góð frétt.

Það er vissulega hughreystandi að heyra svona fréttir, þarna er beitt sósíaliskum úræðum. Gaman væri að heyra að kvótinn væri tekinn frá sjálftökuliðinu og flutt til fólksins.


mbl.is Tekur land frá þeim ríku og gefur hinum fátæku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG eina raunhæfa vonin...

VG eina raunhæfa vonin, en þá verður flokkurinn að lýsa því afdráttarlaust yfir, að hann fari undir engum kringumstæðum í samstarf við Sjálfstæðisflokk. Það setur að manni hroll að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur skuli enn eiga möguleika. Þá er það dapurlegt að þeir sem töluðu sem ákafast fyrir áframhaldandi samstarfi við VG í Samfylkingunni fengu ekki hljómgrunn eins og Pétur Tyrfings. Þannig að EBS samstaf Samfylkingar og Framsóknar er enn inn í myndinni, þar sem róið væri til veiða á steindauð mið.
mbl.is Raunhæft að ná tveimur til þremur mönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafn vitlaust og að reyna að selja Dönum Handritin

Jafn vitlaust og að reyna að selja Dönum Handritin eða að selja Þjóðminjasafnið. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins þurfa á  áfallahjálp að halda. Það hringlar í hausnum á þeim.
mbl.is Lykilverk fari ekki úr eigu þjóðarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nató er eina raunverulega ógn Íslands!

Við munum þegar tveir Nató kjarnorkukafbátar rákust á fyrir sunnan land nú fyrir stuttu hlaðnir kjarnorkuvopnum. Vera Íslands í Nató byggist á þráhyggju en ekki skynsemi. Lýsum lögsögu Íslands kjarnorkulausa og segum okkur Nató.


mbl.is Vilja norrænan leiðtoga NATO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband